Haustnámskeið Vals skokk
N1 höllin, Hlíðarendi, 102 Reykjavík Kort
þri 15. sep 2026 17:30
Horfðirðu á fólkið koma í mark í Reykjavíkurmaraþoninu og hugsaðir: Þarna vil ég vera?
Hefur þig alltaf dreymt um að halda þér í hlaupaformi eftir að sumri lýkur en gefst upp um leið og haustar að.
Eða langar þig bara að hlaupa í góðum félagsskap?
Valur skokk býður upp á haustnámskeið frá 15. september til áramóta sem hentar bæði þeim sem vilja koma sér í gang sem og lengra komnum. Hlaupið er frá Valsheimilinu að Hlíðarenda þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17:30 og laugardaga kl. 9:00. Í október bætast við inniæfingar í frjálsíþróttahöllinni í Laugardal.
Lögð er áhersla á fjölbreyttar hlaupaæfingar við allra hæfi undir öruggri og hvetjandi handleiðslu Jóhanns Freys Jóhannssonar þjálfara.
Verð fyrir þriggja mánaða tímabil: kr. 16.000 Skráning á staðnum Hlaupið er frá Valsheimilinu, Hlíðarenda þriðjudaga og fimmtudaga kl. 17:30 og laugardaga kl. 9:00 Frá 1.október bætast við æfingar í Laugardalshöll á mánudögum kl. 19:30.
Góð hreyfing í frábærum félagsskap!