Hausttiltekt | KonMari kynning á Veturnóttum
Safnahúsið Ísafirði, Eyrargata, 400 Ísafjörður Kort
mið 21. okt 2026 17:00
Bústaðu viðburðinn!Viltu einfalda lífið og taka til og skipuleggja heimilið fyrir veturinn? Eru fataskáparnir fullir af fötum sem þú notar lítið? Finnst þér þú eiga allt of mikið dót? KonMari aðferðin getur hjálpað þér að gera breytingar og taka til og hreinsa út fyrir veturinn.
Lísa Z. Valdimarsdóttir, alþjóðlegur KonMari ráðgjafi og eigandi Skipulagsgleðinnar, segir frá aðferðinni sem er nefnd eftir japanska tiltektargúrúnum Marie Kondo en aðferð hennar rutti sér til rúms fyrir nokkrum árum síðan.
Farið verður yfir grunnhugmyndina að baki aðferðinni þar sem gleðin er í fyrirrúmi og fjallað um aðferðir við tiltekt, skipulag og hvernig við getum losað okkur við fatnað og annað með jákvæðni og sjálfbærni í huga. Rætt verður hvernig við getum nýtt aðferðina á heimilinu og lífinu og sýnt hvernig föt eru brotin saman með aðferðinni. Þau sem koma eru hvött til að koma með fatnað og læra fatabrotið.
Frítt inn og öll velkomin.
Viðburðurinn er hluti af dagskrá Veturnótta.