HEL útgáfuhóf Reynis Finndals Grétarssonar
Penninn Eymundsson - Smáralind, Smáralind, 201 Kópavogur Kort
fim 5. nóv 2026 17:00
Bústaðu viðburðinn!HEL✔️ SPENNA✔️ ÁST✔️ MORÐ✔️ NÝ BÓK✔️
Við fögnum útgáfu skáldsögunnar HEL eftir Reyni Finndal Grétarssonar í Eymundsson Smáralind, fimmtudaginn 5. nóvember kl. 17.00. Boðið verður upp á léttar veitingar. Höfundur les og áritar bókina sem verður á sérstöku útgáfutilboði.
Við vonumst til að sjá ykkur sem allra flest!
📍 Eymundsson Smáralind
📅 5. nóvember
🕕 Kl. 17–18:30
Nánar um HEL:
______
DAGBÓK LÖGREGLU
Fasteignasali finnst myrtur á skrifstofu sinni í Borgartúni
Allt tiltækt lögreglulið kallað út vegna skotbardaga í Garðabænum
Maður stunginn með hnífi í Hamraborg og annar skotinn í hnakkann í Kringlunni
... Hráslagalegur janúardagur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
_______
Guðrún Ýr Ingimarsdóttir er einstaklega fær rannsóknarlögreglumaður sem hefur ákveðna sérstöðu: hún drepur fólk. Eftir fæðingarorlof snýr Guðrún aftur til vinnu, staðráðin í að lifa venjulegu lífi. Vera móðir. Vinna vinnuna sína. Skilja fortíðina eftir. En fortíðin lætur hana ekki í friði og fljótlega þarf Guðrún á allri sinni seiglu og styrk að halda.
HEL er sjálfstætt framhald glæpasögunnar LÍF, sem kom út árið 2025 og var tilnefnd til Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans.