Helgi Björnsson á Hótel Búðum 20. & 21. Nóvember

Helgi Björnsson á Hótel Búðum 20. & 21. Nóvember

Hótel Búðir, Búðir, Staðarsveit, 356 Snæfellsbær Kort

fös 20. nóv 2026 16:00

Bústaðu viðburðinn!

Ath. Uppselt bæði föstudags- & laugardagskvöld.

Helgi Björnsson á Hótel Búðum

Tónlistarveisla með kvöldverði & gistingu.

Tónlistarveislan á Hótel Búðum snýr aftur í þriðja sinn og hefur fest sig í sessi sem einn vinsælasti vetrarviðburður landsins. Sex helgar í röð fyllist hótelið af lifandi tónlist, einstökum mat og hlýlegri stemningu í hjarta Snæfellsness.

Helgina 20. og 21. nóvember mun einn af okkar ást51lustu tónlistarmönnum landsins, Helgi Björnsson, mæta á Hótel Búðir og flytja öll sín bestu lög sem hafa fylgt þjóðinni um árabil. Helgi er að góðu kunnur Búðum og kann svo sannarlega að skapa góða stemningu. Gestir mega því vænta frábærra tónleika, góðra veitinga og notalegrar dvalar á hótelinu.

Innifalið fyrir tvo

• Fordrykkur við komu

• Þriggja rétta kvöldverður

• Lifandi tónleikar með Helga Björnssyni í lounge rými hótelsins

• Gisting í eina nótt

• Ljúffengur morgunverður daginn eftir

Tryggðu þér sæti í tíma. Undanfarin tvö ár hafa nær allar tónlistarhelgar selst upp og eftirspurnin verið gríðarleg.

Við hlökkum til að taka á móti þér og þínum!

Fyrir fyrirtækja- og hópabókanir er hægt að hafa samband á budir@budir.is

Flytjendur