Herrakvöld Víkings 2026
Víkingsheimilið, Víkingsheimilið, Safamýri | Safamýri
fös 13. nóv 2026 19:30
Herrakvöld Víkings 2026
Hið árlega herrakvöld Víkings verður haldið föstudaginn 13. nóvember í veislusal Víkings í Safamýri. Víkingar ættu ekki að láta sig vanta á þennan glæsilega viðburð og nýta tækifærið til að skála og fagna í góðum hópi.
Miðafjöldi er takmarkaður og því er mikilvægt að tryggja sér miða í tæka tíð. Hægt er að kaupa staka miða á kvöldið en einnig er hægt að bóka heil borð (10 sæti) með því að senda póst á gudjon@vikingur.is þar sem kvittun fyrir miðum fylgir með.
Húsið opnar kl. 18.30 og borðhald hefst stundvíslega kl. 19.30. Tómas Þór þingmaður sér um veislustjórn.
Enginn verður svangur því boðið verður upp á glæsilegt steikarhlaðborð að hætti Múlakaffis. Ef þú hefur séróskir varðandi matinn biðjum við þig um að hafa samband á gudjon@vikingur.is