Hreiðrið - Hlustunarpartý
Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort
þri 3. nóv 2026 17:00
Bústaðu viðburðinn!Hreiðrið - Hlustunarpartý
Grófin, 2. hæð
Er til bók, lag eða annað verk sem vekur hjá þér tilfinningu um að tilheyra?
Viltu koma og deila því með öðrum, eða hlusta á aðra segja frá sinni upplifun af því að finna tilheyrslu í listum og bókmenntum?
Á þessum afslappaða viðburði munum við hlusta á nokkrar af hljóðsögunum úr verkefninu Hreiðrið. Hreiðrið er röð viðtala þar sem fólk segir frá bókum, lögum, ljóðum, kvikmyndum eða leikverkum sem veita því tilfinningu um að tilheyra. Frá því í ágúst hafa sögurnar verið til sýnis í notalegu horni í Grófinni.
Áður en uppsetningin er tekin niður er þér boðið að fagna þessum sögum með því að hlusta á þær saman. Við munum einnig spila nokkur af lögunum og lesa brot úr þeim bókum sem var deilt.
Þú mátt koma með bók, lag, ljóð, uppskrift eða annað sem þú vilt deila með hópnum.
Um Hreiðrið: https://borgarbokasafn.is/hreidrid-sogur-um-ad-tilheyra-0
Umsjón: Fanny Sissoko, fanny.sanne.sissoko@reykjavik.is