Hreiðrið: sögur um að tilheyra

Hreiðrið: sögur um að tilheyra

Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort

mán 2. nóv 2026 10:00

Bústaðu viðburðinn!

Hreiðrið er notalegt horn á Borgarbókasafninu Grófinni sem geymir safn texta og miðla sem valdir eru af notendum bókasafnsins. Í Hreiðrinu eru 13 sögur þar sem fólk deilir bókum, lögum, ljóðum, kvikmyndum og leikhúsverkum sem vekja hjá þeim tilfinningu um að tilheyra.

Innsetningin var opnuð í tilefni Hinsegin daga með 9 hinsegin sögum og síðan þá hafa fleiri sögur bæst við.

Í heimi þar sem fólk er sífellt meira sundrað gefur Hreiðrið tækifæri til að hlusta á einstaklinga með mismunandi lífsreynslu.

Innsetningin er opin daglega á 2. hæð í Grófinni og stendur til 2. nóvember n.k.

Nánar upplýsingar veitir

Fanny Sissoko

fanny.sanne.sissoko@reykjavik.is

Nánar um verkefnið: https://borgarbokasafn.is/hreidrid-sogur-um-ad-tilheyra-0