Hvað er jurtalitun?
Náttúrufræðistofa Kópavogs, Hamraborg 6a, 200 Kópavogur Kort
mið. 16.09.2026 12:15
,,Hvað er?" er erindaröð á vegum Náttúsafns Kópavogs. Sérfræðingar úr ýmsum áttum eru fengnir til að varpa ljósi á ólík hugtök og fyrirbæri og skýra þau út á mannamáli.
Viðfangsefni þessa hádegisfyrirlestrar er í anda VÖKU þjóðlistahátíðar dagana 13. – 19. september og mun Guðrúnu Bjarnadóttir náttúrufræðingur og athafnakona með meiru fjalla um jurtalitun á Íslandi. Í erindinu fjallar Guðrún um sögu jurtalitunar á Íslandi, hvaða jurtir hafa verið nýttar til litunar og hvað þessi hefð segir okkur um samband manns og náttúru.
Jurtalitun er aldagömul aðferð til að vinna liti úr plöntum, fléttum og öðrum náttúruefnun og er talið að hafi verið stunduð hér frá landnámi. Áður en tilbúnir litir komu til sögunnar byggðist litun vefnaðar á náinni þekkingu á náttúrunni, árstíðunum og eiginleikum ólíkra jurta. Þeir sem stunduðu jurtalitun þurftu að kunna skil á plöntum, vinnsluaðferðum og efnum sem festu litina og má því segja að í þeirri hefð hafi ekki einungis falist handverk heldur náttúruvísindi. Jurtalitunarfólk var þá jafnvel náttúrufræðingar síns tíma sem byggðu þekkingu sína á reynslu athugunum þekkingar.
Guðrún fékk áhuga á jurtalitun þegar hún vann MS-ritgerð sína um grasnytjar á Íslandi og rakst á gamlar heimildir um litun úr jurtum. Síðan hefur hún rannsakað og þróað aðferðir til að endurvekja þessa þekkingu og rekur í dag jurtalitunarvinnustofuna Hespuhúsið. Hún er athafnakona mikil og er höfundur bókarinnar Grasnytjar á Íslandi og heftisins Jurtalitun á Íslandi ásamt því að vera höfundur Fugla- og Flóruspilanna skemmtilegu frá Hespu.
Erindið verður haldið í Náttúrusafni Kópavogs þann 16. september kl. 12:15 – 13:00. Viðburðurinn er liður í Menningu á miðvikudögum og er styrktur af Menningar og mannlífsnefnd Kópavogsbæjar.
Aðgangur ókeypis!
Öll velkomin
//
This lunchtime lecture is presented in the spirit of VAKA Folk Arts Festival, taking place from 13-19 September. On this occasion, Guðrún Bjarnadóttir, natural scientist, entrepreneur, and author, will discuss the tradition of plant dyeing in Iceland.
In her talk, Guðrún will explore the history of plant dyeing in Iceland, the plants that have traditionally been used to produce dyes, and what this practice reveals about the relationship between people and nature.
Plant dyeing is an ancient method of extracting colors from plants, lichens, and other natural materials and is believed to have been practiced in Iceland since the Settlement Age. Before synthetic dyes became available, textile dyeing relied on an intimate knowledge of nature, the seasons, and the properties of different plants. Practitioners needed to understand plants, processing techniques, and mordants used to fix colors, making plant dyeing not only a craft but also a form of natural science. In this sense, plant dyers can be seen as the naturalists of their time, building their knowledge through observation, experimentation, and experience.
Guðrún's interest in plant dyeing began while researching her master's thesis on the use of grasses and wild plants in Iceland. During her studies, she came across historical sources describing dyeing with plants, sparking a long-term interest in the subject. Since then, she has researched and developed methods for reviving this traditional knowledge and today runs the plant dyeing studio Hespuhúsið. A prolific entrepreneur and author, Guðrún has written the book Grasnytjar á Íslandi (Useful Grasses and Plants in Iceland) and the booklet Jurtalitun á Íslandi (Plant Dyeing in Iceland), and is also the creator of the popular Bird and Flora Card Games published by Hespa.