Hversdagsland / Domestispace
Listasafnið á Akureyri, Kaupvangsstræti 12, 600 Akureyri Kort
lau. 29.08.2026 15:00
Á Akureyrarvöku, laugardaginn 29. ágúst, kl. 15 opnar sýningin Hversdagsland, í sal 09 í Listasafninu á Akureyri. Verið öll hjartanlega velkomin.
Baldvin Ringsted (f. 1974) er fæddur og uppalinn á Akureyri, en býr og starfar í Skotlandi. Hann vinnur með ýmis efni og miðla, þ.m.t. málverk, prent, skúlptúra og vídeó. Baldvin lauk mastersgráðu frá Glasgow School of Art í Skotlandi 2007 og nam þar áður við Myndlistaskólann á Akureyri og Lahti Polytechnic School of Art í Finnlandi. Hann hefur sýnt verk sín víða um heim og hlaut nýlega verðlaun frá The Scottish Landscape Awards.
Á þessari sýningu vinnur Baldvin með nýja seríu þar sem hann notar fundin útsaumsverk til að skapa nýtt landslag. Hann hefur heillast af „vúdúkrafti“ hversdagslegra hluta og hvernig þeir bera með sér þunga minninga. Í hverju fundnu verki felast gleymdar minningar úr húsum sem hafa gengið í arf, verið seld eða endurnýjuð. Baldvin setur þessi brot saman, gefur þeim nýtt líf og leyfir þeim að vaxa upp úr auðninni. Útkoman er ógnvekjandi, kunnuglegt – þó fjarlægt – og súrrealískt landslag.
Flytjendur
-
AkureyrarbærFréttir, fróðleikur og viðburðir á Akureyri.