Hvert leitar fjármagnið? - Málþing fyrir stjórnir og framkvæmdastjórnir
Hotel Reykjavik Grand, Sigtún 38, 105 Reykjavík Kort
fim 12. nóv 2026 09:00
Þriðja árið í röð býður Festa - miðstöð um sjálfbærni upp á lokað málþing fyrir fulltrúa í stjórnum og framkvæmdastjórnum aðildarfélaga. Í þetta sinn verður sjónum beint að þeim þáttum sem fjárfestar leggja áherslu á við ákvarðanatöku og hvað það þýðir fyrir stjórnir og stjórnendur.
Við höfum fengið til liðs við okkur öflugan hóp fjárfesta, fjármögnunaraðila og stjórnenda fyrirtækja til að ræða hvernig sjálfbærni, loftslagsáhætta og breytingar í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi móta ákvarðanir um fjárfestingar og aðgengi fyrirtækja að fjármagni og hvernig stjórnir og stjórnendur geta brugðist við.
✍ Dagskrá:
🔹 Ari Helgason, eigandi og stofnandi fjárfestingarsjóðsins Transition Ventures: Fjárfest í umbreytingu – hvar liggja vaxtartækifærin?
🔹 Sigríður Hrefna Hrafnkelsdóttir, framkvæmdastjóri Samkaupa: Hvað ef sjálfbærni væri ein besta fjárfestingin?
🔹 Halldór Benjamín Þorbergsson, forstjóri Heima
🔹 Carla La Tona, sérfræðingur í sjálfbærum fjármagnsmörkuðum hjá Deutsche Bank: Fjármögnun fyrirtækja – út frá sjónarhorni fjármagnsmarkaða
🔹 Stefán Friðriksson, Svæðisstjóri Norræna fjárfestingarbankans (NIB) á Íslandi: Sjálfbærni sem fjárfesting - Hlutverk Norræna fjárfestingarbankans
Fundarstjóri: Erla Ósk Ásgeirsdóttir, stjórnarformaður Festu.
Pallborðsumræður:
🔹 Ari Helgason, eigandi og stofnandi fjárfestingarsjóðsins Transition Ventures
🔹 Kristbjörg M. Kristinsdóttir, fjármálastjóri Stefnis
🔹 Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka
🔹 Rebekka Ólafsdóttir, áhættustjóri hjá Gildi lífeyrissjóði
Umræðustjóri pallborðs: Snædís Ögn Flosadóttir, forstöðumaður markaða hjá Arion banka.
Með málþinginu viljum við meðal annars varpa ljósi á:
✅ Hvað skiptir fjárfesta og lánveitendur máli? Hvernig meta þau stefnu, stjórnarhætti, áhættu og getu fyrirtækja til að skapa verðmæti til lengri tíma?
✅ Tengsl sjálfbærni og fjármögnunar. Hvernig koma sjálfbærniþættir inn í mat á fjárfestingarkostum, aðgengi að fjármagni og fjármögnunarkjörum?
✅ Áhættu og seiglu í rekstri. Hvernig geta loftslagsbreytingar, aðfangakeðjur og breyttar kröfur viðskiptavina og markaða haft áhrif á rekstur og framtíðarvirði fyrirtækja
✅ Tækifærin í umbreytingunni. Hvar sjá fjárfestar vaxtartækifæri og hvað einkennir fyrirtæki sem eru vel í stakk búin til að grípa þau?
✅ Frá stefnu til árangurs. Hvaða gögn, markmið og mælanlegar aðgerðir gefa fjárfestum og fjármögnunaraðilum trú á stefnu fyrirtækja?
✅ Hlutverk stjórna og stjórnenda. Hvaða spurninga þarf að spyrja og hvernig eiga þessi sjónarmið að endurspeglast í stefnumótun, áhættustýringu og fjárfestingarákvörðunum?
👉 Málþingið er opið öllum þeim sem sitja í stjórn eða framkvæmdastjórn aðildarfélags Festu. Sætaframboð er takmarkað og skráning því nauðsynleg: https://www.sjalfbaer.is/vidburdir#calendar-8b48bc77-0a98-485a-9910-6d4f255724b1-event-835bc236-33c1-444a-8af3-813de0f2cc3b
📅 12. nóvember frá 9:00 – 11:00
📍 Grand Hótel (Hvammur)