Í ljóma liðinna tíma

Í ljóma liðinna tíma

Borgarbókasafnið Spönginni, Spöngin 41, 112 Reykjavík Kort

þri. 25.08.2026 10:00

Dariia Tumanova sýnir í Spönginni.

Sýningin sameinar röð vatnslitamynda sem margar snúast um fornbíla og þann sérstaka heim sem þeir tilheyra. Bílar eru ekki aðeins farartæki heldur einnig menningarleg og söguleg tákn - minningar um liðna tíma.

Sýningin snýst þó ekki aðeins um bíla – heldur einnig um minningar, menningu og þann ljóma sem fortíðin getur enn varpað á daglegt líf okkar. Þetta er listræn ferð í gegnum gamla bílaheima.

Dariia Tumanova er listakona og myndlistarkennari frá Úkraínu og er þetta fyrsta sýning hennar á Íslandi.

Sýningaropnun verður föstudaginn 7. ágúst kl. 16:30.

Sýningin stendur til 28. ágúst.

Öll velkomin!

Sýningar Borgarbókasafnsins:

https://borgarbokasafn.is/syningar

Flytjendur

  • Borgarbókasafnið
    Borgarbókasafnið
    Borgarbókasafn Reykjavíkur er almenningsbókasafn á sjö stöðum - opið rými allra. Hvert og eitt safn h