Indriði G. Þorsteinsson og íslenska karlveldið
Edda - Hús íslenskunnar, Arngrímsgata 5, 107 Reykjavík Kort
lau 5. des 2026 14:00
Bústaðu viðburðinn!Laugardaginn 5. desember kl. 14 heldur Kristján B. Jónasson bókmenntafræðingur fyrirlestur í Eddu um verk Indriða G. Þorsteinssonar (1926-2000).
Fyrirlesturinn ber heitið „Indriði G. Þorsteinsson og íslenska karlveldið“ og er haldinn í tilefni af aldarafmæli Indriða en hann fæddist í Gilhaga í Lýtingsstaðahreppi í Skagafirði 18. apríl 1926.
Indriði G. Þorsteinsson varð þjóðfrægur sem rithöfundur í upphafi sjötta áratugarins og skáldsögur hans 79 af stöðinni og Land og synir eru í hópi víðlesnustu og kunnustu íslensku skáldverka 20. aldar og hafa báðar verið kvikmyndaðar. Hann sendi alls frá sér sex skáldsögur auk smásagnasafna, ævisagna, kvæða, leikrita og heimildaverka. Hann var ekki síður kunnur sem blaðamaður, ritstjóri og pistlahöfundur.
Skoðanagreinar sem hann ritaði bæði undir eigin nafni og undir dulnefninu Svarthöfði gerðu hann að einum umdeildasta höfundi landins á áttunda og níunda áratugnum og hann varð einskonar holdtekja hægrisinnaðra og þjóðernissinnaðra hugmynda. Afstaða Indriða til femínisma, verkalýðsmála, menningarmála og félagslegra baráttumála af ýmsu tagi olli oft háværum og stormasömum deilum sem aftur höfðu áhrif á afstöðu fjölmiðla, fræðafólks og gagnrýnenda til skáldverka hans.
Í fyrirlestrinum verður fjallað um tvær síðustu skáldsögur Indriða, Unglingsvetur sem út kom árið 1979 og Keimur af sumri frá árinu 1987, í ljósi hinnar menningarpólitísku umræðu áttunda og níunda áratugarins og verður sérstaklega horft til þess hvernig hugmyndir um karlmennsku, femínisma og vald birtast í sögunum. Upphefja sögurnar íslenska karlveldið eða fjalla þær um kreppu þess og blindgötur?