Inngilding í íslensku háskólasamfélagi

Inngilding í íslensku háskólasamfélagi

Norræna húsið, Sæmundargata 11, 102 Reykjavík Kort

fim 5. nóv 2026 09:00

Bústaðu viðburðinn!

Það er okkur sönn ánægja að bjóða til lokaráðstefnu verkefnisins Inngilding í íslensku háskólasamfélagi, sem haldin verður 5. nóvember 2026 kl. 9.00–15.00 í Norræna húsinu.

Ráðstefnan markar lok tveggja ára samstarfsverkefnis opinberu háskólanna á Íslandi um inngildingu og jafnframt upphaf næsta áfanga, þar sem niðurstöður, stefna og verkfæri verkefnisins verða færð inn í áframhaldandi starf háskólanna.

Á ráðstefnunni verða kynntar helstu niðurstöður verkefnisins og reynsla nemenda, auk þess sem fjallað verður um fordóma, staðalmyndir, upplifun um að tilheyra, inngildandi kennslu og ábyrgð stofnana.

Meðal aðalfyrirlesara verður Dani de Torres, sérfræðingur Evrópuráðsins í millimenningarlegri stefnumótun, stjórnandi spænska netsins Intercultural Cities og stofnandi Anti-Rumours Global. Hann hefur unnið með borgum og stofnunum víða um Evrópu að því að þróa hagnýtar leiðir til að takast á við fordóma, staðalmyndir og neikvæða orðræðu um innflytjendur og fjölbreytileika. Á ráðstefnunni fjallar hann um Anti-Rumours nálgunina og hvernig nýta má hana til að efla opnara samtal, gagnrýna hugsun og inngildingu.

Eliza Reid stýrir ráðstefnunni. Hún er rithöfundur, fyrirlesari, talskona jafnréttis og fyrrverandi forsetafrú Íslands. Eliza hefur mikla reynslu af því að leiða samtöl og koma fram á alþjóðlegum vettvangi um jafnrétti, samfélag, sjálfsmynd og félagslegar breytingar. Hún er jafnframt meðstofnandi Iceland Writers Retreat og hefur um árabil tekið virkan þátt í íslenskri samfélagsumræðu.

Dagskráin mun meðal annars innihalda:

-kynningu á helstu niðurstöðum verkefnisins;

-raddir og reynslu nemenda;

-aðalfyrirlestra um fordóma, inngildingu og Anti-Rumours nálgun;

-hagnýt dæmi um inngildandi kennslu og móttöku;

Ráðstefnan er ætluð starfsfólki og stjórnendum háskóla, kennurum, nemendum, starfsfólki opinberra stofnana og sveitarfélaga og öllum þeim sem hafa áhuga á jafnrétti, fjölmenningu og inngildingu.

Aðgangur er ókeypis en skráning https://forms.cloud.microsoft/e/uCi11AWa9J er nauðsynleg.

Boðið verður upp á veitingar.

Ráðstefnan verður að hluta til á íslensku og að hluta til á ensku.