Já til að SJÁ opið hús - Akureyri
Sunnuhlíð 12, Sunnuhlíð 12, 603 Akureyri Kort
þri. 25.08.2026 17:00
📅Þriðjudagur 25. ágúst kl 17-19
📌Sunnuhlíð 12, fyrsta hæð.
Pepp og gleði fyrir okkur öll, forvitna og ákveðna.
Gestir verða meðal annars:
Ingvar Þóroddsson þingmaður
Unnur Pétursdóttir fyrrv. formaður Sjúkraþjálfarafélags Íslands
SJÁ er samansafn fólks úr öllum áttum sem sameinast um einfalda hugmynd: að kjósa já í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst – já til að sjá samning🇮🇸
Við teljum mikilvægt að Íslendingar fái tækifæri til að kynna sér hvað aðildarsamningur við Evrópusambandið myndi fela í sér áður en endanleg ákvörðun er tekin. Hreyfingin er opin öllum, óháð afstöðu til þess hvernig kosið yrði að loknum mögulegum samningaviðræðum.
Í boði verða léttar veitingar og kaffi.
Hlökkum til að SJÁ sem flest!✨
Flytjendur
-
SJÁSJÁ er samansafn fólks úr öllum áttum sem sameinast um einfalda hugmynd: að kjósa já í þjóðaratkvæðagreiðslunni 29. ágúst — já til að sjá samning.
Hreyfingin er opin öllum sem vilja sjá hvað myndi felast í samningi við Evrópusambandið.