Jazz í Djúpinu // Ástrún: Tónlist úr kvikmyndum Pedro Almodóvar

Jazz í Djúpinu // Ástrún: Tónlist úr kvikmyndum Pedro Almodóvar

Djúpið, Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík Kort

fim 17. sep 2026 20:30

Á þessum tónleikum verða röddinn, gítarinn og bassinn notuð til að flytja nokkur lög úr kvikmyndum eftir Pedro Almodóvar.

Myndheimur spænska leikstjórans Almodóvar er fullur af tónlist, litum, melódramatískum og oft fyndnum senum. Aðalhlutverkin eru gjarnan sterkar kvenpersónur sem eru jaðarsettar í samfélaginu en saga þeirra er sögð af innsæi og samúð með sterkum áhrifum frá spænskri menningu, poppmenningu og kitch-fagurfræði.

Tónlistin skipar mjög stóran sess í kvikmyndum Almodóvar og á þessum tónleikum verður farið í ferðalag inn í tónheim mynda hans.

Ástrún Friðbjörnsdóttir er söngkona og lagahöfundur. Hún hefur sungið fjölbreytta tónlist, þar á meðal mikið af spænskri tónlist og flamenco en hefur undanfarið verið að gefa út sína eigin tónlist. Hún gaf út smáskífuna Sandkorn vorið 2023 þar sem gítarleikarinn Ívar Símonarson sá um gítarútsetningar og gítarundirleik. Ívar hefur einbeitt sér að flamenco gítarleik og hefur farið á ýmis námskeið því tengdu á Spáni.

Leifur Gunnarsson er raf- og kontrabassaleikari ásamt því að vera lagahöfundur. Hann hefur komið víða við í tónlistinni og gaf út jólaplötuna Jólaboð hjá tengdó fyrir síðustu jól.

Tónleikaröðin Jazz í Djúpinu fer fram á fimmtudagskvöldum kl. 20:30 haustið 2026. Djúpið er kjallarinn á veitingastaðnum Hornið (Hafnarstræti 15, 101 Reykjavík). Inngangur í Djúpið er að aftan, til móts við Bæjarins beztu. Inngangurinn í kjallarann opnar kl. 20:00. Miðaverð er 4.000 ISK, miðar eru seldir við innganginn og í forsölu. Tónleikaröðin eru skipulögð af Jazzdeild FÍH og er styrkt af Menningarsjóði FÍH, Tónlistarsjóði og Reykjavíkurborg. Athugið að ekki er hjólastólaaðgengi á staðnum.