Jazz við höfnina - Tríó Sigurðar Flosasonar
Hafnartorg Gallerí, Geirsgata 17, 101 Reykjavík Kort
mið. 26.08.2026 17:30
Í tilefni Jazzhátíðar Reykjavíkur mun Tríó Sigurðar Flosasonar spila ljúfa tóna fyrir gesti Hafnartorgs Gallery miðvikudaginn 26. ágúst. Tónleikarnir verða frá kl. 17:30-18:30 og opnir öllum.
Með Sigurði Flosason leika Einar Scheving á trommur og Agnar Magnússon á hljómborð.
Tilvalið að koma og gera vel við sig í mat og drykk og njóta lifandi jazztónlistar. 🎺
Flytjendur
-
Sigurður Flosasonsaxófónn, klarinett og slagverk
-
Jazzhátíð ReykjavíkurJazzhátíð Reykjavíkur hefur verið haldin árlega allt frá árinu 1990 og er næst elsta tónlistarhátíð landsins. Hátíðin er vettvangur alls þess helsta sem gerist á sviði innlendrar jazztónlistar og er hápunktur jazzlífsins á Íslandi og árleg uppskeruhátíð innlendra jazztónlistarmanna.
Meginmarkmið Jazzhátíðar Reykjavíkur er að styðja við og kynna jazztónlist og bjóða tónlistarmönnum og jazzunnendum upp á framúrskarandi vettvang og umgjörð þar sem þeir geta flutt og notið áheyrnar þess besta sem gerist í innlendri og erlendri jazztónlist. Jafnframt leggur Jazzhátíðin innlendum jazztónlistarmönnum lið með því að koma þeim á framfæri við hátíðir í öðrum löndum í gegnum samstarfsvettvang hagsmunaaðila á evrópsku jazzsenunni, European Jazz Network, en Jazzhátíð Reykjavíkur hefur verið meðlimur samtakanna undanfarin ár.