Jazzhátíð Reykjavíkur í Hörpu
Harpa | Norðurljós, Austurbakki 2, 101 Reykjavik Kort
fös. 28.08.2026 19:00
María Magnúsdóttir (Tónleikar til heiðurs söngkonum Rómönsku Ameríku) (IS)
Föstudagurinn 28. ágúst | Harpa, Norðurljós
22:00
Kvöldpassi*
Söngkonan María Magnúsdóttir mun ásamt hljómsveit sinni fara með hlustendur í heimstónlistarferðalag um Rómönsku Ameríku. María bjó um tíma í Argentínu sem skiptinemi, lærði spænsku og kynntist þar tónlist þjóðarinnar. Ekki varð aftur snúið og drottningar þjóðlagatónlistar mið og suður-Ameríku hafa heillað hana sérstaklega allar götur síðan. Hljómsveitin heiðrar þekktar stórsöngkonur á borð við Mercedes Sosa, virtustu þjóðlagasöngkonu Argentínu, Omara Portundo sem gerði garðinn frægan með Kúbversku hljómsveitinni Buena Vista Social Club, Susana Baca frá Perú, Astrud Gilberto frá Brasilíu ásamt fleirum.
María Magnúsdóttir, söngur
Ásgeir Ásgeirsson, gítar
Sigmar Þór Matthíasson, bassi
Sigrún Kristbjörg Jónsdóttir, slagverk og básúna
Rodrigo Lopes, trommur
Föstudagurinn 28. ágúst – Harpa, Norðurljós
19:00 - Frelsissveitin & Davíð Þór Jónsson (IS)
20:00 - Look North (FR/UK)
21:00 - Tómas Jónsson / Magnús Trygvason Eliassen: Best á Flest (IS)
22:00 - María Magnúsdóttir – Tónleikar til heiðurs söngkonum Rómönsku Ameríku (IS)
Kvöldpassi kostar 8.990 kr. en við bjóðum upp á afsláttarverð, 6.990 kr., fyrir þau sem kjósa lægra verð og sérstakt stuðningsverð fyrir velunnara hátíðarinnar, 9.990 kr.
Flytjendur
-
Frelsissveit ÍslandsIceland’s Liberation Orchestra (Frelsissveit Íslands) hefur verið starfrækt frá árinu 2010. Forsprakki verkefnisins er Haukur Gröndal. Fjölmargir hljóðfæraleikarar hafa tekið þátt í verkefnum sveitarinnar á þeim rúmu 14 árum sem hún hefur verið starfrækt. Efnistökin hafa verið fjölbreytt og úr ýmsum áttum. Undanfarin fjögur ár hefur samstarf við raddlistamanninn Sverri Guðjónsson gefið af sér þrjú all sérstök verk með textum, tónlist og útsetningum eftir Hauk Gröndal. Á Reykjavik Jazz Festival 2024 hverfur sveitin að einhverju leiti til upphafsins og leikur verk eftir ýmsa höfunda þ.a.m. Óskar Guðjónsson og Hauk Gröndal í útsetningum þess síðarnefnda. Allar raddir njóta sín í ævintýramennsku í átökum við formfestu.
Haukur Gröndal, saxófónar
Óskar Guðjónsson, saxófónar
Snorri Sigurðarson, trompet
Samúel J. Samúelsson, básúna
Birgir Steinn Theódórsson, bassi
Magnús Trygvason Elíassen, trommur
Matthías M.D. Hemstock, trommur
-
Davíð Þór
Rappari úr Vesturbænum sem tekur þátt í leikhúslegri og persónulegri frásögn.
-
María Magnúsdóttir
Söngkona
-
Jazzhátíð ReykjavíkurJazzhátíð Reykjavíkur hefur verið haldin árlega allt frá árinu 1990 og er næst elsta tónlistarhátíð landsins. Hátíðin er vettvangur alls þess helsta sem gerist á sviði innlendrar jazztónlistar og er hápunktur jazzlífsins á Íslandi og árleg uppskeruhátíð innlendra jazztónlistarmanna.
Meginmarkmið Jazzhátíðar Reykjavíkur er að styðja við og kynna jazztónlist og bjóða tónlistarmönnum og jazzunnendum upp á framúrskarandi vettvang og umgjörð þar sem þeir geta flutt og notið áheyrnar þess besta sem gerist í innlendri og erlendri jazztónlist. Jafnframt leggur Jazzhátíðin innlendum jazztónlistarmönnum lið með því að koma þeim á framfæri við hátíðir í öðrum löndum í gegnum samstarfsvettvang hagsmunaaðila á evrópsku jazzsenunni, European Jazz Network, en Jazzhátíð Reykjavíkur hefur verið meðlimur samtakanna undanfarin ár.
-
Tómas JónssonPíanó og hljóðgervlar
-
Reykjavík Jazz Festival25. - 30. ágúst 2026 / August 25th-30th 2026
www.reykjavikjazz.is
-
Ásgeir ÁsgeirssonSagnfræðingur
-
Sigmar Þór Matthíasson
Hljómsveit, kontrabassi