Jól með Brother Grass

Jól með Brother Grass

Café Rosenberg, 25 Klappar stígur, 101 Reykjavík Kort

sun 13. des 2026 21:00

Bústaðu viðburðinn!

Jól með Brother Grass

Á meðan Kári bítur kinn og frostið gegnum allt smýgur,
þá hugsum við til jólanna og ykkar kæru vinir.

Okkar desember einkennist af mandarínum,
laufabrauði og ljósadýrð, en umfram allt TÓNLIST og góðri samveru!

 

Eftir 12 ára vetrardvala snýr Brother Grass aftur á Rósenberg í desember. Akkúrat rétti tíminn til að kíkja í geymslurnar og finna til þvottabrettið og balann, víbraslappann og allt skrítna slagverkið, jóladressin og spariskónna. Nú er góður tími til að spila plötuna Jól.

Jól hefur víða skipað sér sess sem stór þáttur í jólaundirbúningi landsmanna með hlýjum lagasmíðum, fjölradda söng og sannri leikgleði - allt sem fangar hinn sanna jólaanda.

 

Brother Grass skipa:
Hildur Halldórsdóttir
Sandra Dögg Þorsteinsdóttir
Soffía Björg Óðinsdóttir
Örn Eldjárn
Ösp Eldjárn

 

Rautt í tá og bygg í maga?

Hlökkum til að sjá ykkur