Jólabókaflóðið á Borgarbókasafninu Gerðubergi

Jólabókaflóðið á Borgarbókasafninu Gerðubergi

Borgarbókasafnið Gerðubergi, Gerðuberg 3, 111 Reykjavík Kort

mið 4. nóv 2026 18:30

Bústaðu viðburðinn!

Kíkjum í (jóla)pakkann!
Komum saman, hittum höfunda og tölum saman um nýjustu bækurnar!
Jólabækurnar streyma inn á bókasöfninu og við ætlum því að bjóða höfundum og þýðanda í heimsókn til okkar með glænýjar bækur í farteskinu.
Við bjóðum Guðrúnu Evu Mínervudóttur, Björn Halldórsson og Ingunni Snædal velkomin á Bókasafnið Gerðubergi þar sem þau ætla að eiga í skemmtilegu spjall við Sunnu Dís Másdóttur, skáld og fyrrum bókmenntagagnrýnanda Kiljunnar, um nýjustu bækurnar úr þeirra smiðju.
Ingunn Snædal ræðir um nýútgefna þýðingu sína á hinni gífurlega vinsælu og umtöluðu skáldsögu Yesteryear eftir bandaríska rithöfundinn Caro Claire Burke.
Guðrún Eva Mínervudóttir segir frá nýjustu skáldsögu sinni, Ljósföður, sögulegri skáldsögu sem byggir á sögu Jónasar Jónssonar sem tók á móti börnum og stundaði lækningar og var forfaðir Guðrúnar Evu.
Björn Halldórsson gaf nýverið út skáldsöguna Ókunnugt fólk sem hlotið hefur sérlega góðar viðtökur jafnt gagnrýnenda sem og lesenda.
Komum saman, hittum höfunda og tölum saman um nýjustu bækurnar!
Léttar veitingar í boði.
Öll hjartanlega velkomin á skemmtilegt og upplífgandi samtal um nýjustu bækurnar.