Jólahlaðborð Tívolí
Tívolí Restaurant & Bar, Pósthússtræti 2, 101 Reykjavík Kort
þri 8. des 2026 11:45
Frá 20. nóvember og fram að jólum býður Tivolí upp á veglegt jólahlaðborð í hlýlegu og afslöppuðu andrúmslofti. Á hlaðborðinu verður gott úrval af forréttum, aðalréttum og eftirréttum – allt vandlega útbúið og borið fram í anda Tivolí.
Á kvöldin er hlaðborðið í fullri stærð og kostar 9.900 kr. á mann. Í hádeginu er boðið upp á jólahlaðborð í minna sniði á 6.900 kr. á mann.
Komdu og njóttu góðs matar og notalegrar samveru með fjölskyldu, vinum eða samstarfsfólki.