Jólajazz í Tjarnarbíó

Jólajazz í Tjarnarbíó

Tjarnarbíó, Tjarnargata 12, 101 Reykjavík Kort

þri 15. des 2026 20:00

Bústaðu viðburðinn!

Velvet er glænýtt dúó þar sem Rannveig Káradóttir söngkona og Birgir Steinn Theodorsson kontrabassaleikari mynda óvenjulega berskjaldaðan en magnaðan hljóðheim. Yfirtónaróf bassans nær alla leið upp á tíðnisvið raddarinnar og eins og vefur hana inn í flauel. Þegar víbratóin þeirra falla á sömu bylgjulengd er það hreint töfrum líkast.

Á efnisskránni er að finna hugljúf jólalög á borð við Have Yourself a Merry Little Christmas og I’ll be Home for Christmas og nokkur hefðbundin íslensk jólalög í nýjum búningi. Einnig verða nokkur þekkt jazznúmer flutt við íslenska jólatexta Rannveigar. Þetta er tilvalið tækifæri til að eiga huggulega stund og gleyma sér mitt í öllu jólastressinu.

Flytjendur