Jólakort og pakkamiðar

Jólakort og pakkamiðar

Borgarbókasafnið | Menningarhús Úlfarsárdal, Úlfarsbraut 122, 113 Reykjavík Kort

fim 3. des 2026 15:30

Bústaðu viðburðinn!

Komdu og búðu til jólakort og pakkamiða með okkur og upplifðu hugljúfa jólastemmningu!
Fyrsti fimmtudagur desembermánaðar verður tileinkaður jólakortaföndri á safninu en við ætlum að búa til hlýleg jólakort og snotra pakkamiða. Allt efni verður til staðar – karton, skrautpennar, gatarar og fleira. Við munum líka nýta gamlar bækur sem gefa kortunum sérstakan og hátíðlegan blæ.
Fyrir hverja er smiðjan?
Smiðjan hentar fullorðnum og eldri börnum. Yngri börn eru velkomin en þurfa að vera í fylgd fullorðins sem getur veitt aðstoð.
Við hvetjum fullorðna til að mæta og leyfa sköpunargleðinni að njóta sín í notalegri og skemmtilegri stund. Aðgangur er ókeypis og skráning er óþörf.
Tilbúningur er viðburðarröð sem fer fram á:
Borgarbókasafninu Spöng fyrsta miðvikudag hvers mánaðar.
Borgarbókasafninu Árbæ annan þriðjudag hvers mánaðar.
Borgarbókasafninu Úlfarsárdal fyrsta fimmtudag hvers mánaðar.
Nánari upplýsingar:
ulfarsa@borgarbokasafn.is