Jólamarkaður í Hafnarhúsi | Christmas Market at Hafnarhús 🎄 🎄

Jólamarkaður í Hafnarhúsi | Christmas Market at Hafnarhús 🎄 🎄

Listasafn Reykjavíkur | Hafnarhús, Tryggvagata 17, 101 Reykjavík Kort

lau 5. des 2026 12:00

Bústaðu viðburðinn!

Það verður jólastemning í porti Hafnarhússins helgina 5.–6. desember þegar Visteyri og Listasafn Reykjavíkur bjóða til jólamarkaðar í hjarta borgarinnar. Komdu við, fáðu þér heitt kakó eða jólaglögg hjá Hafnarhaus og röltu á milli meira en 40 sölubása í leit að jólagjöfum og gersemum.

Í portinu verður hægt að finna allt frá vintage-flíkum og gömlum gersemum úr geymslunni til listaverka, handverks og hönnunar. Kannski leynist þar jólagjöfin handa einhverjum sem á allt, eða flíkin sem þig langar að klæðast á aðfangadagskvöldi.

Visteyri verður með 15 bása fulla af fallegum second hand flíkum, Góði hirðirinn verður með kílómarkað og úrval vintage-verslana og annarra seljenda verður á staðnum.

Hvort sem þú kemur til að finna jólagjafir, gefa fallegum hlutum nýtt líf eða einfaldlega njóta jólastemningarinnar með heitan bolla í hönd, þá hlökkum við til að sjá þig í portinu.

📅 Laugardagur og sunnudagur, 5.–6. desember 2026

🕛 Kl. 12:00–17:00 báða daga

📍 Listasafn Reykjavíkur – Hafnarhús, Tryggvagötu 17, 101 Reykjavík

Flytjendur