Jólapeysu smiðja með Ýrúrarí

Jólapeysu smiðja með Ýrúrarí

Listasafn Árnesinga, Austurmörk 6, 810 Hveragerðisbær Kort

sun 6. des 2026 13:00

Bústaðu viðburðinn!

DESEMBER

Jólapeysu smiðja með Ýrúrarí

6. des

Kl. 13

Allur aldur

Fjölskylduvæn smiðja þar sem peysur öðlast nýtt útlit í jólaþema fyrir desember.

Smiðjan byggir á skapandi fataviðgerðar smiðjum textílhönnuðarins Ýrúrarí, þar sem föt öðlast nýtt líf og útlit með mjög einföldum og aðgengilegum aðferðum.

Þátttakendur koma sjálfir með peysu, eða prjónaða flík, sem þau vilja breyta og ef einhverjar sérstaklega jólalegar hugmyndir hafa vaknað fyrir smiðju, eins og t.d að nota litlar jólaseríur eða úrelt jólaksraut heima úr geymslu, þá er um að gera að taka slíkt með!

Í smiðjunni verður í boði ýmis efniviður og verkfæri sem hægt er að vinna með í einföldum og skrautlegum textíl aðferðum sem henta algjörum byrjendum sem og lengra komnum. Einnig verður í boði efniviður og lausnir til að taka þátt í smiðjunni án þess að koma með peysu eða flík, enda ýmislegt sem hægt er að útbúa til að festa á flíkur tímabundið bara fyrir jólin.

Ætlast er til að börn yngri en 10 ára komi í fylgd fullorðins.

Skapandi fataviðgerðarsmiðja Ýrúrarí hefur ferðast víða, og hefur t.f farið fram í Tívolí í Kaupmannahöfn, Textile Art Center í New York, á Helsinki fashion week og á MAK safnið í Vín. Þátttakendum er því einnig frjálst að vinna fataviðgerðir sem eru ekki í jólaþema og virka allan ársins hring en stuðst er við svipaðar aðferðir á jólapeysusmiðjunni.

Smiðjuna þróaði textílhönnuðurinn Ýr Jóhannsdóttir (Ýrúrarí) á Hönnunarsafni Íslands í lokaverkefni sínu í listkennsludeild LHÍ, þar sem markmiðið var að móta aðgengilega fataviðgerðarsmiðju þar sem skapandi hugsun og flæði ræður för. Ýrúrarí er þekkt fyrir endruvinnsluverkefni sín með notaðar ósöluhæfar peysur sem hún glæðir nýju lífi og persónuleika með fjölbreyttum handverks aðferðum.

Hægt er að skoða verkefni Ýrúrarí á www.yrurari.com

Takmarkað pláss og skráning nauðsynleg á fraedsla@listasafnarnesinga.is

Ókeypis smiðja

Flytjendur