Jólasprettikort

Jólasprettikort

Bókasafn Kópavogs | Aðalsafn, Hamraborg 6a, 200 Kópavogur Kort

lau 21. nóv 2026 13:00

Bústaðu viðburðinn!

Reddaðu jólakortunum snemma! Þátttakendur læra einfaldar aðferðir til að búa til „pop-up“-kort (sprettikort) og uppgötva hvernig pappírsbrot, klipp og litir geta breytt flötum pappír í litla heima sem spretta fram.

Umsjón með smiðjunni hefur Iva Franjic.

Smiðjan fer fram á íslensku og ensku auk þess sem aðstoð býðst á króatísku.

Smiðjan hentar öllum aldri og allur efniviður er á staðnum.

Aðgangur er ókeypis og öll hjartanlega velkomin meðan húsrúm leyfir.

Fjölskyldustundir á laugardögum eru notalegar samverustundir, gjarnan smiðjur, sem fara fram í menningarhúsunum í Kópavogi og eru styrktar af menningar- og mannlífsnefnd.