Jólatrjáasala HSSR í Elliðaárstöð

Jólatrjáasala HSSR í Elliðaárstöð

Elliðaárstöð, Rafstöðvarvegur 6, 110 Reykjavík Kort

fös 11. des 2026 10:00

Bústaðu viðburðinn!

Jólatrjáasala er ein af fjáröflunum okkar. Með því að kaupa jólatré af okkur styður þú við öflugt starf Hjálparsveitar skáta í Reykjavík (HSSR). Þannig gerir þú okkur kleift að sinna leitar- og björgunarverkefnum.

Jólatrjáasala HSSR verður opin frá og með 11. desember fram að jólum og fer salan fram í Elliðaárstöð, Rafstöðvarvegi 14.

Opnunartímar:

• Helgar kl. 10:00 - 21:00

• Virkir dagar kl. 16:00 – 21:00

Í jólatréssölu HSSR er boðið upp á normannsþin frá Danmörku og íslenska stafafuru.

Að auki er boðið upp á greinar, jólatrésfætur og kerti.

Við hvetjum þig til að líta við í Elliðaárstöð.

HSSR þakkar öllum þeim sem kaupa jólatré kærlega fyrir stuðninginn.

Við hlökkum til að sjá þig. Gleðileg jól!