Jólavogur | Málmblásarakvintett Sinfóníuhljómsveitar Íslands
Smáralind, Hagasmári 1, 201 Kópavogur Kort
fös 18. des 2026 16:00
Bústaðu viðburðinn!Jólaglaðningur frá Kópavogsbæ við jólatréð í Smáralind 🎄
Föstudaginn 18. desember kl. 16:00 leikur málmblásarakvintett skipaður hljóðfæraleikurum úr Sinfóníuhljómsveit Íslands hátíðleg jólalög á sviðinu við jólatréð í Smáralind.
Hlýir og hljómfagrir tónar málmblásturshljóðfæranna skapa notalega jólastemningu og bjóða gestum og gangandi að staldra við og njóta tónlistarinnar í miðju jólaamstrinu.
Viðburðurinn er hluti af Jólavogi, jóladagskrá Kópavogsbæjar, og er öllum opinn.
Verið öll hjartanlega velkomin!