Jón Hjartarson les Aðventu eftir Gunnar Gunnarsson í þremur hlutum

Jón Hjartarson les Aðventu eftir Gunnar Gunnarsson í þremur hlutum

Hannesarholt, Grundarstigur 10, 101 Reykjavík Kort

lau 19. des 2026 11:30

Bústaðu viðburðinn!

Jón Hjartarson les Aðventu eftir Gunnar Gunnarsson á þremur laugardögum í desember í Hannesarholti. Aðventa er ein þekktasta skáldsaga Gunnars og ein af gersemum íslenskra bókmennta. Sagan byggir á svaðilför Fjalla-Bensa, hundinum Leó og forystusauðnum Eitil í leit að eftirlegukindum á Mývatnsöræfum árið 1925. Bókin kom út 1936, fyrst á dönsku, en hún hefur verið þýdd á yfir 20 tungumál.

Jón Hjartarson, leikari, hefur átt langan og farsælan feril á sviði, leikið yfir 80 hlutverk með Leikfélagi Reykjavíkur, jafnframt komið fram í kvikmyndum, sjónvarps- og útvarpsverkum.

Upplesturinn fer fram í Hljóðbergi, sal Hannesarholts, 5., 12., og 19. desember kl.11:30.