Jón Proppé um Listsköpun Valgerðar Briem

Jón Proppé um Listsköpun Valgerðar Briem

Gerðarsafn Kópavogur Art Museum, Hamraborg 4-6, 200 Kópavogur Kort

sun 1. nóv 2026 15:00

Bústaðu viðburðinn!

Verið velkomin á leiðsögn listheimspekingsins Jóns Proppé um sýninguna Valgerður sunnudaginn 1. nóvember klukkan 15:00. Jón var einn þeirra fræðimanna sem skrifaði í bókina Myndvit: Arfleið Valgerðar Briem.

Nánar um sýninguna:

Valgerður Briem (1914–2002) var myndlistarkona, kennari og frumkvöðull á sviði myndmenntar. Ævistarf hennar mótaðist í samspili eigin listsköpunar og kennslu, þar sem form, litir, efni og sjónræn hugsun urðu að leiðarljósi. Valgerður steig fyrst fram opinberlega sem myndlistarmaður á Haustsýningu Félags íslenskra myndlistarmanna árið 1980, þá 66 ára. Að baki þeirrar stundar lágu áratugir af einbeittri vinnu: teikningar, vatnslitir, vaxmyndir, skissur, letur og mynstur. Þegar fjölskylda Valgerðar færði Gerðarsafni um 1.640 verk á pappír árið 2006 varð umfang þessa ævistarfs fyrst fyllilega sýnilegt.

Kennsla var gríðarmikilvægur og sjálfstæður þáttur í ævistarfi Valgerðar og áhrif hennar bárust áfram með þeim fjölmörgu nemendum sem hún leiðbeindi. Arfleifð sem ekki birtist sem sameiginlegur stíll en kemur fram í ólíkum leiðum, vinnubrögðum og þeirri áræðni að treysta eigin sýn. Á sýningunni má einnig sjá verk eftir listamenn sem hún hafði áhrif á:

Birgir Andrésson

Erró

Kristín Jónsdóttir frá Munkaþverá

Sigríður Björnsdóttir

Örn Þorsteinsson

Gerðarsafn hlaut tveggja ára rannsóknarstyrk frá Safnasjóði til heildstæðrar frumrannsóknar á ævistarfi Valgerðar Briem, leidda af Cecilie Gaihede. Rannsóknin samtvinnar listfræðilega könnun á listsköpun hennar og miðlun í sýningu og útgáfu bókarinnar Myndvit – Arfleifð Valgerðar Briem, með fræðigreinum um listsköpun, kennslu og nálgun Valgerðar.