Jónsson, Hemstock, Gröndal kvartett - útgáfutónleikar - Múlinn Jazzklúbbur
Harpa | Björtuloft, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort
mið 2. des 2026 20:00
Jazzklúbburinn Múlinn heldur áfram með haustdadagskrá sína með spennandi tónleikum miðvikudaginn 2. desember kl. 20:00 á Björtuloftum, Hörpu. Á tónleikunum kemur fram Jónsson, Hemstock, Gröndal kvartett og heldur útgáfutónleika í tilefni af útkomu nýrrar plötu sveitarinnar. Kvartettinn sem er leiddur af bræðrunum Ólafi og Þorgrími Jónssonum ásamt Hauki Gröndal og Matthíasi MD Hemstock flytur frumsamda tónlist eftir meðlimi sveitarinnar. Tónlistin sækir í hefð jazzins en horfir jafnframt fram á við. Um er að ræða framsækinn jazz þar sem fallegar og lagrænar tónsmíðar eru í forgrunni þar sem flytjendurnir fá jafnframt mikið rými til að kanna ólík blæbrigði og möguleika spuna. Tónlistin spannar þannig breitt svið, allt frá frjálsum og orkumiklum spuna yfir í íhugaðar og næmar tónsmíðar þar sem samspil hljóðfæraleikaranna fær að njóta sín. Á tónleikunum verður nýja platan í brennidepli, en jafnframt gefst tækifæri til að upplifa tónlistina í lifandi flutningi, þar sem hún getur tekið á sig nýja mynd og þróast í samspili flytjendanna. Kvartettinn býður upp á tónleika þar sem skapandi spuni og framsækin nálgun mætast í lifandi og fjölbreyttum tónlistarheimi.
Spennandi haustdagskrá Múlans heldur síðan áfram á miðvikudagskvöldum fram í miðjan desember. Múlinn er að á sínu 29. starfsári en hann er samstarfsverkefni Félags Íslenskra Hljómlistamanna (FÍH) og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á Jóni Múla Árnasyni sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans. Múlinn er styrktur af Reykjavíkurborg og SUT sjóðnum og er í samstarfi við Heimstónlistarklúbbinn og Hörpu. Jazzklúbburinn Múlinn er handhafi Íslensku tónlistarverðalaunanna. Tónleikar Múlans fara fram á miðvikudagskvöldum klukkan 20:00 á Björtuloftum, fimmtu hæð Hörpu. Miðaverð kr. 5200 og 3800 fyrir nemendur og eldri borgara, miðar fást í miðasölu Hörpu