Kirkja í mótun - Þróun kirkjubygginga
Hallgrímskirkja, Hallgrímstorg 1, 101 Reykjavík Kort
þri 20. okt 2026 12:00
Bústaðu viðburðinn!Kirkja í mótun
Hádegisfyrirlestrar í Hallgrímskirkju á þriðjudögum í október 2026 kl. 12:00–13:00. Léttar veitingar í boði.
Í tilefni af 40 ára vígsluafmæli kirkjunnar gefa fyrirlestrarnir að þessu sinni áheyrendum tækifæri til að kynnast kirkjubyggingunni nánar, hugmyndunum sem liggja að baki hönnunar hennar og þeirri sögu sem mótað hefur kirkjuna, umhverfi hennar og stöðu hennar sem eins helsta kennileitis Reykjavíkur.
Þriðjudaginn 20. október flytur Hilmar Björnsson arkitekt fyrirlestur undir yfirsögninni Þróun kirkjubygginga.
Hilmar nam við Det Kongelige Danske Akademi for de Skönne Kunster í Kaupmannahöfn og er meðal annars einn af arkitektunum sem hönnuðu Grafarvogskirkju.
Lokafyrirlestur fyrirlestrarraðarinnar ber fyrirsögnina
Myndlist í Hallgrímskirkju og fer fram 27. október kl. 12-13
Aðalheiður Valgeirsdóttir, myndlistarmaður og listfræðingur
Aðrir fyrirlestrar í Hallgrímskirkju í október:
Dagana 18.-25. október verður sérstök afmælisvika í tilefni af vígsluafmælinu þann 25. október sem haldið verður upp á með ýmsum viðburðum. Hátíðarfyrirlestur Andrésar Narfa er hluti af afmælisvikunni, einnig verður haldin vinnustofan "Hallgrímskirkja með augum arkitekts" fyrir börn.
Vinnustofa fyrir börn: Hallgrímskirkja með augum arkitekts
verður haldin sunnudaginn 18. október kl. 12:15
Alma Sigurðardóttir sérfræðingur í varðveislu bygginga og höfundur barnabókarinnar Byggingarnar okkar, leiðir smiðjuna.
Hátíðarfyrirlestur: Kirkja í mótun
Fimmtudaginn 22. október kl. 17
Arkitektinn Andrés Narfi Andrésson gefur sérstakan hátíðarfyrirlestur þar sem hann fjallar nánar um Hallgrímskirkju og sögu hennar.
Ókeypis aðgangur er á alla viðburði tengda 40 ára Vígsluhátíð í Hallgrímskirkju í október 2026
HALLGRÍMSKIRKJA – Í MÓTUN