Arkitektúr er allt í kringum okkur, þótt við tökum ekki alltaf eftir honum. Húsin og rýmin sem við dveljum í hafa áhrif á daglegt líf okkar, hvernig við hreyfum okkur, leikum, vinnum og erum saman.
En hvernig hefur hönnun og arkitektúr áhrif á okkur? Hvernig húsum viljum við búa í? Þurfum við ólík rými fyrir ólíkar athafnir og hvað gerir rými gott?
Í hönnun Alvars Aalto var manneskjan ávallt í fyrirrúmi, og börn voru þar engin undantekning. Í teikningum sínum og skipulagi gerði Aalto ráð fyrir börnum og þörfum þeirra. Verk hans minna okkur á að börn eiga rétt á góðu daglegu lífi og umhverfi sem tekur mið af þeim.
Sýningin er byggð á bókinni Kurjen Kartta (Kort trönunnar – ævintýri í bylgjuskógi) eftir Reetta Niemelä og myndskreytingar eftir Eri Shimatsuka eru í forgrunni.
Á sýningunni má einnig finna gagnvirka leiki, rými fyrir hreyfingu og sköpun og lestrarhorn. Klifurgrind fyrir yngstu gesti verður einnig á sínum stað og úrval bóka sem beina sjónum byggingarlist, hönnun og líkömum. Námskeið, föndurstundir og sögustundir verða einnig í boði í tenglsum við sýninguna og hægt verður að finna nánari upplýsingar á heimasíðu Norræna hússins og samfélagsmiðlum.
Ókeypis er á sýningar og viðburði Norræna hússins og öll eru velkomin!
Aðgengi að barnabókasafni er niður stiga frá bókasafni eða með lyftu frá andyri og í gegnum sýningarýmið Hvelfingu.Starfsfólk á bókasafni veitir nánari upplýsingar og aðstoðar eftir þörfum. Nánari upplýsingar um aðgengi er að finna með því að smella hér.
Kroppar og kassar
Norræna húsið, Sæmundargata 11, 102 Reykjavík Kort
mán 9. nóv 2026 10:00
Bústaðu viðburðinn!