Krúttlegasta bókaboðið! 🐰🧸🐉

Krúttlegasta bókaboðið! 🐰🧸🐉

BíumBíum, Ármúli 38, 108 Reykjavík Kort

lau 14. nóv 2026 14:30

Bústaðu viðburðinn!

Bergrún Íris og Tindur Lilja fagna útgáfu þriggja bóka í Bíumbíum og bjóða ÞÉR að vera með í gleðinni! 🐰🧸🐉

Róleg og notaleg sögustund fyrir lítil kríli, aðeins meira fjör fyrir þau eldri, kaffi ☕️ og kökur 🍰 og BLÖÐRULISTAMAÐUR á staðnum! 🎈

Tindur Lilja mun lesa úr bók sinni Bangsi og Lúna og Bergrún úr bókinni Áður en ég sofna. Svo fá eldri systkinin auðvitað eitthvað fyrir sinn snúð því Bergrún les líka kafla úr bókinni Skelfing í Skrímslabæ sem þau Tindur bjuggu til saman!

Allar þrjár bækurnar verða á tilboðsverði í tilefni dagsins sem og fyrri bækur um Bangsa og Skrímslabæ 📚👏

Við hlökkum til að sjá ykkur öll í Bíumbíum á laugardaginn kl. 14:30-16:00!

Flytjendur