❤️ Kryddað með kærleika í Kjós – matarveisla fyrir gott málefni!
Kjós, Sogn 1, 276 Mosfellsbær Kort
mið 9. des 2026 17:30
Bústaðu viðburðinn!🌶️ KRYDDAÐ með kærleika í KJÓS
Matarupplifun með tilgangi
Frá kakó- og ávaxtaekrum Ekvador að íslensku matarborði
Krydd frá ýmsum heimshlutum mæta íslensku hráefni og framleitt af Lífræna eldhúsi Lilju
Miðvikudaginn 9. desember kl. 17:30–21:00 býð ég til notalegrar samverustundar í Hvalfirði þar sem við njótum góðs matar úr vönduðu hráefni, hlýju og samveru við stórt borð
Kvöldið verður blanda af matargerð, upplifun, fróðleik, gleði og samveru – og auðvitað segi ég betur frá ferðinni til Ekvador.
Aðeins 16 sæti.
Frjálst þátttökuframlag, en við mælum með að lágmarki $55 á mann (um 7.000 kr.). Til viðmiðunar er áætlað verðmæti sambærilegrar matarupplifunar $90–100.
Hafðu endilega samband fyrir nánari upplýsingar og skráningu. Einnig ef þú vilt leggja matarupplifuninni lið með öðrum hætti, til dæmis með því að gefa hráefni beint frá býli til matargerðarinnar.
„Með kvöldinu söfnum við fyrir þátttöku okkar í sjálfboðaliðaferð Young Living Foundation til Ekvador, þar sem ég mun meðal annars vera viðstödd útskrift Elkins, sem ég hef styrkt til skólagöngu um árabil.“
Hér er söfnunarsíðan okkar
https://www.younglivingfoundation.org/fundraiser/donate/from-iceland-to-ecuador-a-special-graduation
Hlý ilmandi kveðja
Lilja
liljaodds@gmail.com
s. 848-9585