Kvöldkirkja í Hallgrímskirkju

Kvöldkirkja í Hallgrímskirkju

Hallgrímskirkja, Hallgrímstorg 1, 101 Reykjavík Kort

fim 22. okt 2026 20:00

Kvöldkirkja í Hallgrímskirkju
Tilgangur kvöldkirkjunnar er að opna kirkjudyrnar fyrir öllum sem vilja dýpka enn frekar trúarlega upplifun sína eða finna sig ekki í hefðbundnu helgihaldi.
Tónlist, þögn, íhugun og kyrrð eru einkenni kvöldkirkjunnar.
Kvöldkirkjan er samstarfsverkefni Dómkirkjunnar og Hallgrímskirkju. Prestar og starfsfólk þessara miðborgarkirkna starfa saman og öflugt tónlistarfólk sér um tónlistarflutning.
Kvöldkirkjan er öllum opin og hentar mörgum. Velkomin.
Kvöldkirkja verður haldin í Hallgrímskirkju í haust 24. september, 22. október og 26. nóvember og fyrir jólin þann 17. desember 2026
HALLGRÍMSKIRKJA – ÞINN KYRRÐARSTAÐUR