Laddi 80 ára afmælistónleikar

Laddi 80 ára afmælistónleikar

Harpa | Eldborg, Austurbakki 2, 101 Reykjavík Kort

lau 23. jan 2027 20:00

Bústaðu viðburðinn!

Laddi fagnar 80 ára afmæli þann 20. janúar næstkomandi. Af því tilefni býður hann til tónleikaveislu í Eldborg laugardaginn 23. janúar. Honum til halds og traust verður Hljómsveit mannanna og sérstakir gestir eru vinir Ladda, þau Eyþór Ingi og Ragga Gísla.

Þjóðargersemina Ladda þarf ekki að kynna sérstaklega, við elskum hann öll. Tónlistin hefur alltaf skipað stóran sess í lífi hans og eftir hann liggur stórt safn laga og texta sem hafa lifað með okkur síðustu áratugi.

Undanfarin ár hefur Laddi komið reglulega fram með Hljómsveit mannanna og saman hafa þeir glatt áhorfendur víða um land.

Hér fær tónlistin að njóta sín, gömlu góðu lögin lifna við og gleðin ræður ríkjum. Þetta er einstakt tækifæri til að fagna þessum stóru tímamótum með Ladda og vinum í Eldborg.

AFMÆLISBARNIÐ

Laddi

GESTIR

Eyþór Ingi

Ragga Gísla

HLJÓMSVEIT MANNANNA

Magni Ásgeirsson - Gítar og raddir

Arnar Tryggvason - Hljómborð og píanó

Ármann Einarsson - Saxófónn og harmónikka

Pétur Steinar Hallgrímsson - Gítar og mandólín

Sumarliði Helgason - Bassi og raddir

Valur Freyr Halldórsson - Trommur og raddir

Valgarður Óli Ómarsson - Slagverk

ÁSAMT

Kjartan Hákonarson - Trompet

Rósa Guðrún Sveinsdóttir - Saxófónn

Samúel Jón Samúelsson - Básúna