Langleggur og Skjóða í Lindaskógi

Langleggur og Skjóða í Lindaskógi

Bókasafn Kópavogs | Lindasafn, Núpalind 7, 201 Kópavogur Kort

lau. 19.12.2026 11:00

Langleggur og Skjóða eru systkini jólasveinanna og kunna margar skemmtilegar sögur úr Grýluhelli. Þau hafa heldur betur slegið í gegn síðustu ár og heimsækja hinar ýmsu jólaskemmtanir með glænýja jólasögu á hverju ári.

Í ár segir Skjóða frá því þegar hún og Rófa litla systir hennar fengu það mikilvæga verkefni að sækja hið fullkomna jólatré í Jólaskóginn. Ferðin gekk þó heldur hægar en áætlað var og áður en þær vissu af var
skollið á niðamyrkur. Skjóða er myrkfælin en verður nú að vera hugrökk fyrir litlu systur sína. Geta þær ratað aftur heim í Grýluhelli — og getur jólastjarnan kannski vísað þeim veginn?

Sagan er um 20 mínútur að lengd og á eftir syngja þau vel valin jólalög með krökkunum. Mörg börn þekkja Skjóðu úr jóladagatali Hurðaskellis og Skjóðu, Jólasögum Skjóðu á Storytel og úr bíómyndinni Jólamóðir.

Leikritið verður haldið utandyra, í rjóðrinu fyrir ofan Lindasafn / Lindaskóla í Núpalind 7, sem kallast Lindaskógur.

Fyrir þau sem koma á bíl: bílastæði eru við Lindaskóla, bæði Núpalindarmegin og Galtalindarmegin.

Fyrir þau sem ferðast með strætó: Leiðir 2 og 28 stoppa í nágrenni við skólann.

Ef snjóar verða einnig nóg af lausum stæðum fyrir sleða og snjóþotur.

Leikritið er ókeypis og öll eru hjartanlega velkomin!

Flytjendur