Laufey - From the Start - Nemendur MÍT leika tónlist Laufeyjar
RVK Bruggfélag Tónabíó, Skipholt 33, 105 Reykjavík Kort
mán 9. nóv 2026 20:00
Bústaðu viðburðinn!Laufey – From the Start
Söngsýning Menntaskóla í tónlist
Dagana 9. og 10. nóvember bjóða nemendur Menntaskóla í tónlist (MÍT) upp á söngsýninguna Laufey – From the Start í Tónabíói við Skipholt 33.
Að þessu sinni er tónlist Laufeyjar í aðalhlutverki en hún hefur á undanförnum árum vakið verðskuldaða athygli á alþjóðlegum vettvangi fyrir sinn einstaka tónlistarheim þar sem jazz, popp og klassísk tónlist mætast. Laufey, sem er fyrrum nemandi skólans, hefur meðal annars tvívegis hlotið Grammy-verðlaun fyrir tónlist sína.
Á sýningunni flytja söngnemendur MÍT fjölbreytt úrval laga úr tónlistarsafni Laufeyjar, þar sem söngur, hljóðfæraleikur og sviðsframkoma fléttast saman.
Tónlistarstjórn og umsjón: Hilmar Jensson og Guðlaug Dröfn Ólafsdóttir
Sviðshreyfingar: Snædís Lilja Ingadóttir
Staðsetning: Tónabíó, Skipholti 33
Dagsetningar: 9. og 10. nóvember 2026
Tími: Kl. 20:00 bæði kvöldin
Verið hjartanlega velkomin á söngsýningu þar sem tónlist Laufeyjar fær að njóta sín í flutningi ungs og efnilegs tónlistarfólks!