Leikur er töfrar er fjársjóðsleit
Hafnar.Haus, Tryggvagata 17, 101 Reykjavík Kort
fim 12. nóv 2026 17:00
Bústaðu viðburðinn!◼️ Leikur er töfrar er fjársjóðsleit | Ráðhildur Ólafsdóttir
◾️OPNUN: Fimmtudag 12.11.2026, 17:00-20:00
▪️OPNUNARTÍMAR: 16:30-18:00 virka daga, 14:00-16:00 um helgina
hafnar◾️space, hafnar.haus, Tryggvagöta 17, inngangur A, önnur hæð
▪️rýmið
Hafnar.space er listamannarekið sýningarrými í Hafnar.haus. Lesið nánar um rýmið á vefnum okkar www.hafnar.space og instagram @hafnar.space
▪️sýning
Þér er boðið inn í töfrandi veröld leiksins.
Veröld sem býður þér að setja sannleikann til hliðar og gefa þér ímynduninni á vald. Beinlínis krefur þig um það.
Í heimi leiksins er sannleikurinn ekki til,
hér ráða töfrarnir ríkjum.
Merkingin felst í ímynduninni.
Leikurinn er töfrar, töfrar eru fjársjóðsleit
og fjársjóðsleitin tekur aldrei enda.
Sýningin Leikur er töfrar er fjársjóðsleit varpar veröld leiksins fram í formi leikfanga, manngerðra og náttúrulegra. Gestum er boðið að leggja sannleika sinn til hliðar og gefa sig töfrum ímyndunarinnar á vald. Líkt og við gerðum öll sem börn þegar við endurröðuðum veruleika okkar og mynduðum nýja veröld. Á sýningunni er gestum boðið að taka sér leikföng í hönd, gefa sig leiknum á vald og stíga aftur inn í veröld töfra og fjársjóðaleitar.
▪️listamaður
Ráðhildur (f. 2000) stundaði nám í myndlist við Listaháskóla Íslands. Í verkum sínum vinnur hún þvert á miðla og sameinar textíl, skúlptúr, ljóðlist og fundinn efniviði. Hún sækir innblástur í það sem liggur milli hins raunverulega og ímyndaða. Verk hennar bera með sér vísanir í ævintýri, leikföng, hið yfirnáttúrulega og hugmyndaheim bernskunnar. Hún sækir efnivið í eigin bernskuminningar og reynslu sína af starfi í leikskóla.