Lestrarþjálfun og félagsfærni - mikilvægt veganesti við upphaf grunnskólagöngu
Hlégarður, 2 Háholt, 270 Mosfellsbær Kort
fim 12. nóv 2026 19:30
Bústaðu viðburðinn!Fimmtudaginn 12. nóvember frá kl. 19:30-21:00 verða Elvar Jónsson leiðtogi farsældar barna og Kristín Edda Guðmundsdóttir kennsluráðgjafi með fræðslu fyrir foreldra nemenda 1. bekkja í grunnskólum Mosfellsbæjar.
Upphaf grunnskólagöngunnar markar mikil tímamót í lífi barna og foreldra. Börnin takast á við nýjar áskoranir, þróa og mynda vináttutengsl og halda áfram að byggja á þeim grunni sem lagður hefur verið varðandi málþroska og læsi á leikskólaárunum. Góð félagsfærni er mikilvæg forsenda fyrir góðri líðan, jákvæðum samskiptum og árangursríkri þátttöku í skólastarfinu , rétt eins og regluleg lestrarþjálfun er mikilvægur grundvöllur fyrir áframhaldandi námi. Í hvoru tveggja gegna foreldrar lykilhlutverki.
Á fyrirlestrinum verður því fjallað um hlutverk foreldra þegar kemur að lestrarþjálfun og félagsfærni og veittar hagnýtar leiðbeiningar um hvernig styðja má við börnin í þessum efnum. Markmiðið er að foreldrar fari heim með hagnýt verkfæri til að styðja við þroska og skólagöngu barna sinna.
Foreldraskóli Mosfellsbæjar er verkefni sem hleypt er af stokkunum haustið 2026 og er hluti af Samskiptasáttmála Mosfellsbæjar. Foreldraskólinn felur í sér árlega fræðslu fyrir foreldra sem miðast við aldur barna þeirra. Mælst er til þess að allir foreldrar viðkomandi aldurshóps sæki þá fræðslu sem boðið er upp á hverju sinni.