Leyndardómar Óperunnar | Fjölskyldudagskrá Hörpu

Leyndardómar Óperunnar | Fjölskyldudagskrá Hörpu

Harpa | Hörpuhorn, Hörpuhorn, 101 Reykjavík Kort

lau 21. nóv 2026 11:00

Bústaðu viðburðinn!

Fjölskyldudagskrá Hörpu: Leyndarmál óperunnar

📍 Staður: Hörpuhorn í Hörpu

📅 Dagsetning: Laugardagur 21. nóvember

🕚 Tími: Kl. 11:00

👨‍👩‍👧 Aldur: Allur aldur

🎟 Aðgangur: Ókeypis og ekki þarf að sækja miða

Samstarfsverkefni Fjölskyldudagskrár Hörpu og Óperunnar.

Við bjóðum krökkum og fjölskyldum þeirra að skyggnast inn í töfraheim óperunnar í Hörpu. Þar verður hægt að hitta óperusöngvara, kynnast starfi þeirra og fræðast um það hvað ópera er í raun og veru. Upplagt er að nýta stundina og fá svör við spennandi spurningum: Hversu djúpt getur bassasöngvari sungið? Getur sópransöngkona brotið glas með röddinni? Og hvað gera söngvararnir eiginlega ef þeir gleyma textanum á miðju sviði? Við leysum úr þessum ráðgátum og afhjúpum ýmis önnur leyndarmál óperunnar saman.