Lífið er konsert
Hof Menningarhús | Hamraborg, Strandgata 12, 600 Akureyri Kort
lau. 24.10.2026 16:00
Karlakór Eyjafjarðar
fagnar 30 ára afmæli sínu með stórtónleikum í Hofi á Akureyri þar sem léttleiki í lagavali og flutningi
verður í fyrirrúmi. Á efnisskránni verða
lög sem fólk þekkir í flutningi ýmissa vinsælla hljómsveita eins og t.d. Gauta,
Ingimars Eydal, Skriðjökla, Greifanna, Baraflokksins, Póló og Bjarka og
Magnúsar Eiríkssonar. Einnig verða flutt lög eftir Óðin Valdimarsson, Bjarna
Hafþór og Eirík Bóasson. Þá verða einnig
flutt sígild kórlög eins og t.d. úr Vesalingunum.
Einsöngvarar verða stórsöngvararnir:
Magni Ásgeirsson og Snorri Snorrason ásamt félögum úr röðum kórsins.
Daníel Þorsteinsson píanóleikari fer fyrir hljómsveitinni en hana skipa meðal
annarra:
Emil Þorri Emilsson, trommur
Stefán Ingólfsson, bassi
Kristján Edelstein, gítar
Sóley Einarsdóttir, trompet
Vilhjálmur Sigurðsson, trompet
Michael Weaver, klarinett, saxófónn, flauta.
Stjórnandi: Guðlaugur Viktorsson
Karlakór Eyjafjarðar býður ykkur velkomin á einstaka tónleika þar sem þekkt lög munu vekja upp endurminningar um ljúfar stundir liðinna áratuga.
Flytjendur
-
Daníel Þorsteinsson
Tónlistarmaður og tónheilari
-
GreifarnirEftir lengsta hlé síðan 1995 eru Greifarnir aftur mættir — ferskari og glaðari en nokkru sinni fyrr!
-
Magni
Skærasti søngstjarna landsins
-
Ingibjörg Elsa Turchi
Bassi