Listaspjall með Jo Pawlowska og Diljá Þorvaldsdóttir í samtali við sýningastýrur.

Listaspjall með Jo Pawlowska og Diljá Þorvaldsdóttir í samtali við sýningastýrur.

Duus safnahús, Duusgata 2 - 8, 230 Keflavík Kort

sun 11. okt 2026 14:00

Bústaðu viðburðinn!

Jo Pawlowska talar um sitt framlag til sýningarinnar Nína, Okkar kærasta Nína.

Innsetningin Óskabein leitast við að skrásetja lífsreynsluna sem fólgin er í því að ferðast í gegnum kynstaðfestingarferli með stuðningi þeirra sem háni þykir vænt um. Sumar ljósmyndirnar bera vitni um vanmátt háns og sársauka á meðan aðrar sýna afmörkuð augnablik gleði, umhyggju, nærgætni og ástar.

Verkið er þess vegna myndrænt samtal við málverk Nínu, hinsegin lestur á verki hennar um leið og það spyr: Hver getur gert tilkall til höfundarréttar á myndum sem er dreift um samfélagið, og í hvaða tilgangi?

Jo Pawlowska (hán/háns) er myndlistarkvár og sýningarstýri, fætt í Póllandi og búsett á Íslandi, sem byggir listsköpun sína á samvinnu. Auk Jo lögðu Sadie Cook, Zahra Hussaini, Sasa Lubinska, Cari Sekendur og Paweł Włodarski ljósmyndir til verksins. Paweł Włodarski vann einnig að gerð textílsins með Pawlowska.

Diljá Þorvaldsdóttir talar um sitt framlag til sýningarinnar Nína, Okkar kærasta Nína.

Verk Diljár fjallar um net völdu fjölskyldunnar sem er til staðar og grípur okkur þegar blóðfjölskyldan er einhverra hluta vegna ekki nálæg. Þegar vinir Diljár eignast börn og stofna fjölskyldur hefur hún stigið inn í hlutverkið sem vinir móður hennar gegndu einu sinni, að vera „frænka“ fyrir börn þeirra, hvort sem þau eru blóðskyld henni eða ekki.

Diljá gerir þetta öryggisnet sýnilegt með gjörningi sem hefur tekið marga mánuði að skapa. Hver einasta perla var þrædd upp á víra sem voru fléttaðir saman til að mynda möskva netsins, litríks regnboganets sem hefur skýra tilvísun í hinsegin camp-hefð.

Diljá Þorvaldsdóttir (hún/hennar) vinnur út fyrir mörk málverks, útsaums, perluverka og textíls til að rannsaka víðáttuna á milli hins óhlutbundna, hinseginleika og persónulegrar upplifunar.

Diljá útskrifaðist með BA-gráðu í myndlist frá Listaháskóla Íslands árið 2021. Hún hefur tekið þátt í sýningum á Íslandi og erlendis ásamt residensíum í Philadelphiu 2022 og í Vermont Studio Center 2025. Árið 2022 stofnaði hún Kannski gallerí ásamt eiginkvári sínu Sadie Cook.