Lón og Lunch á Jólastúkunni
Vínstúkan Tíu sopar, Laugavegur 27, 101 Reykjavík Kort
sun 20. des 2026 13:00
Bústaðu viðburðinn!Lón og Lunch á Jólastúkunni!
Vínstúkan tíu sopar og hljómsveitin Lón blása til veislu á vínstúkunni sunnudaginn 20. Desember kl. 13 með indælum tónum og lúxusmat
Við ætlum að útbúa þriggja rétta hádegisverð með sjö mismunandi réttum, stálheiðarlegan umfaðmandi jólamat (sjá maðseðil neðar). Með þessu verðum við með vínin sem við erum að flytja inn, og fást hvergi annarsstaðar en hjá okkur, á sérstöku jólatilboði.
Eins og þetta sé nú ekki nóg þá verða vinir okkar í Hljómsveitinni Lón, sem einmitt voru að gefa út glænýja jólaplöptu, með okkur í þessu og taka lagið á milli rétta og þegar þeim dettur í hug af sinni alkunnu snilld.
ATH! Það eru mjög fá sæti í boði svo það er vissara að bóka strax áður en það selst upp!
Miðaverð er 15.000 á mann og inni í því er innifalið allur þessu matur og auðvitað tónleikar.
Það er því von á extra kósí hádegissstund á vínstúku allra landsmanna.
Með kveðju,
Lón og Vínstúkan
Miðakaup: https://www.dineout.is/vinstukan?isolation=true
Matseðill:
Forréttir:
Rækjukokkteill
Reyktur silungur
Beinmergur og ristað brauð
Aðalréttur
Porchetta
St Johns Salat
Roast Potatoes
Rauðvíns Demi glace
Desert
Bûche de Noël
Jólaglögg + Piparkökur