Langar þig að hitta annað prjónaáhugafólk og æfa þig í íslensku í afslappaðri stemningu? Ert þú íslenskumælandi sem elskar handverk, vilt hitta nýtt fólk og deila prjónaþekkingu þinni með öðrum?
Lopi og Orð eru notalegar stundir þar sem öll sem hafa gaman af handverki eins og prjóni, hekli og útsaumi og hafa grunnþekkingu í íslensku eru velkomin. Hugmyndin á bak við viðburðinn er að skapa rými þar sem íslenskunemendur geta æft sig að tala málið og tengst íslenskri menningu í afslappaðri og notalegri stemningu.
Við munum hafa kaffi/te fyrir öll, prjónauppskriftir og orðaforðablað.
Íslenskumælandi eru einnig hvött til að vera með okkur, spjalla við þátttakendur og deila hannyrðaþekkingu sinni með öðrum.
Við hittumst einu sinni á mánuði.
Kl. 15:00 til 16:30
2. hæð Grófinni
Þessi viðburður er á vegum Huldumáls, félag stúdenta í Íslensku sem öðru máli.
Hafa samband við: huldumal@hi.is
Fyrirvari: Allir textarnir eru þýddir af nemendunum í Íslensku sem öðru mál, ef eitthvað er óljóst eða ekki skynsamlegt endilega sendið okkur tölvupóst eða lesið upplýsingar á ensku.
Lopi og orð
Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort
sun 8. nóv 2026 15:00
Bústaðu viðburðinn!