lúpína í Sky Lagoon | Iceland Airwaves Event
Sky Lagoon, Vesturvör 44-48, 200 Kópavogur Kort
þri 3. nóv 2026 18:30
Upplifðu einstakan viðburð, tónleika með lúpínu í Sky Lagoon þriðjudaginn 3. nóvember í samstarfi við Iceland Airwaves, þar sem íslensk baðmenning mætir ógleymanlegri tónleikaupplifun.
Lúpína mun halda 30 mínútna tónleika klukkan 20:30 inni í torfbænum sem hýsir sjö skrefa Skjól Ritúalið. Innifalið í miðanum er aðgangur að Sky Lagoon og Skjól Ritúalinu ásamt aðgangi að tónleikum lúpínu✨
Byrjaðu Airwaves vikuna á endurnærandi upplifun fyrir öll skilningarvitin í Sky Lagoon. Gestir geta komið fyrr um kvöldið, notið lónsins og farið í gegnum Skjól Ritúalið áður en tónleikarnir hefjast🙌
🌊Dagskrá🌊
18:30, 19:00 og 19:30
Gestir mæta á þeirra bókaða tíma og geta notið Skjól Ritúalsins.
20:00
Skjól Ritúalið lokar. Á meðan geta gestir notið lónsins.
20:30
Tónleikar hefjast inni í torfbænum. Sloppar verða í boði fyrir gesti.
21:00
Tónleikunum lýkur og gestir geta snúið aftur út í lónið.
21:45
Sky Lagoon lokar.
Athugið að tónleikarnir eru eingöngu í boði fyrir gesti sem hafa bókað komu kl. 18:30, 19:00 eða 19:30. Skjól Ritúalið verður lokað á meðan tónleikarnir fara fram.