Martinus: Kosmísk vitund og sálrænt sjálfstæði — Þróun mannsins og fæðing nýrrar vitundar

Martinus: Kosmísk vitund og sálrænt sjálfstæði — Þróun mannsins og fæðing nýrrar vitundar

Lífspekifélagið, Ingólfsstræti 22, 101 Reykjavík Kort

fös 13. nóv 2026 19:30

Bústaðu viðburðinn!

Samkvæmt heimsmynd Martinusar stendur jarðneski maðurinn mitt í djúpri umbreytingu. Í vitund okkar lifa enn öfl sem tengjast sjálfsbjargarhvöt, ótta, reiði og baráttu, en samhliða vex nýr hæfileiki til samkenndar, fyrirgefningar og skilnings.

Sálrænt sjálfstæði felst hjá Martinusi í því að maðurinn verði smám saman frjálsari undan ótta, reiði, biturð og þörfinni fyrir viðurkenningu annarra. Hann lærir að standa sjálfur í vitund sinni, taka ábyrgð á eigin viðbrögðum og láta ytri aðstæður síður ráða innri líðan sinni. Kosmísk vitund lýsir hjá Martinusi ekki aðeins meiri þekkingu, heldur djúpri umbreytingu í vitund mannsins.

Samkennd og kærleikur vaxa, skilningur á samhengi lífsins dýpkar og einstaklingurinn fer smám saman að skynja tilveruna sem lifandi heild.

Frá ótta til skilnings.

Frá baráttu til kærleika.

Frá ósjálfstæði til sálræns sjálfstæðis.

Í fyrirlestrinum verður skoðað hvernig reynsla lífsins - einnig erfið reynsla - mótar vitund mannsins, hvernig hið innra frelsi þróast og hvernig þessi umbreyting getur leitt til þeirrar víðari lífssýnar sem Martinus nefnir kosmíska vitund.

Hilmar Sigurðsson flytur erindið og að því loknu er boðið upp á kaffi og meðlæti á annarri hæð.