Menningarveturinn 2026 í Kópavogi - Þér er boðið!

Menningarveturinn 2026 í Kópavogi - Þér er boðið!

Salurinn, Hamraborg 6, 200 Kópavogur Kort

fim. 03.09.2026 17:00

Þér er boðið!

Kynning á haustdagskrá menningarhúsanna í Kópavogi

Velkomin á fjölbreytta viðburðadagskrá og fríar veitingar í Menningarhúsunum í Kópavogi fimmtudaginn 3. september kl. 17-18:30. Boðið verður upp á forsmekk af þeim hundruðum viðburða sem fram undan eru í menningarhúsunum á vetrarmánuðum og veitingastaðurinn Krónikan í Gerðarsafni kynnir matseðil sinn. Dagskráin samanstendur m.a. af tónlistarflutningi, örleiðsögnum og upplestri í notalegri stemningu menningarhúsanna.

Kynningin hefst í Gerðarsafni kl. 17, þar sem Kvennakórinn Blika syngur fyrir gesti og safnstjóri segir frá því sem er fram undan. Þaðan liggur leiðin í Náttúrusafnið, þar sem boðið verður upp á örleiðsögn um safnið sem er í sífelldri mótun. Á Bókasafni Kópavogs tekur forstöðumaður safnsins á móti gestum og skáldkonan Guðrún Eva Mínervudóttir spjallar við gesti. Að lokum er gengið yfir í Salinn, þar sem forstöðumaður Salarins stiklar á stóru um dagskrá hans fram undan, Hanna Dóra Sturludóttir tekur lagið, skálað verður fyrir haustinu og gestum boðið að bragða á úrvali veitinga frá Krónikunni.

Taktu frá daginn, mættu með góða skapið og röltu með okkur inn í menningarhaustið í Kópavogi!

Gleðilegan menningarvetur.

Flytjendur