Menntafléttan - Skapandi stærðfræði fyrir unglingastig

Menntafléttan - Skapandi stærðfræði fyrir unglingastig

Í streymi, , Reykjavík Kort

mið 21. okt 2026 14:15

Bústaðu viðburðinn!

Sköpun og stærðfræði eiga meiri samleið en fólk fær oft að kynnast. Efla má sköpun með lausnaleit, mynstrum, samræðum, leik, verklegri vinnu og skapandi tækni.

Námskeiðið er ætlað kennurum og skólum sem vilja efla stærðfræðimenntun en þeir kennarar sem sækja námskeiðið geta þróað eigin stærðfræðikennslu og verið leiðandi í sínum skóla. Námskeiðið byggir á öflugu námssamfélagi sem kennarar geta útvíkkað á eigin vinnustað og stuðlað að jákvæðri starfsþróun.

Markmið námskeiðsins er að kennarar öðlist innsýn í hlutverk sköpunar í stærðfræði og geti nýtt fjölbreyttar leiðir til þess að efla skapandi nám með nemendum sínum. Kennarar læra leiðir til þess að nálgast fjölbreyttan nemendahóp, stuðla að fjölbreyttu námsmati og kennsluháttum sem styrkja nemendur í grunnfærni sem og dýpra námi.

Námskeiðið hentar kennurum og sérkennurum á unglingastigi grunnskólans allsstaðar að af landinu. Kennt verður í gegnum fjarfundarbúnað og milli tíma vinna kennarar í sínum skóla að starfsþróun á vettvangi.

Námskeiðið er þátttakendum að kostnaðarlausu.

Kennari: Ósk Dagsdóttir, lektor við HÍ, grunnskólakennari að mennt og sérfræðingur í skapandi stærðfræði

Sjá nánar og skráning á menntaflettan.is

Kortlagning á sérhæfingu kennara sýnir að aðeins um 17% þeirra sem kenna stærðfræði á miðstigi og 26% á unglingastigi eru með sérhæfingu í stærðfræði.

Í kennarakönnun kom fram að þarfirnar eru aðeins ólíkar eftir stigum en á unglingastigi eru það kennslufræði stærðfræðinnar (32%), fjölbreyttir nemendahópar (29%) og námsmat/greining og grunnfærni (25% hvort).

Námskeið Skapandi stærðfræði fyrir unglingastig er byggt upp til að leggja sitt á vogarskálarnar, til að svara þessari þörf.

Flytjendur