MIG LANGAR AÐ SEGJA SÖGU: Króatískt verðlaunaleikhús fyrir börn kemur til Íslands

MIG LANGAR AÐ SEGJA SÖGU: Króatískt verðlaunaleikhús fyrir börn kemur til Íslands

Borgarbókasafnið Grófinni, Tryggvagata 15, 101 Reykjavík Kort

lau 14. nóv 2026 13:30

Bústaðu viðburðinn!

Mig langar að segja sögu (e.

) er verkefni hins margverðlaunaða Teatar Poco Loco frá Zagreb í Króatíu sem mun sýna tvær spennandi skuggaleiksýningar fyrir börn og fjölskyldur: Úlfurinn og kiðlingarnir sjö og Afi og stærsta rófa í heimi, á Borgarbókasafninu í nóvember.
Með leik, lifandi tónlist, myndskreytingum, ljósi og skuggaleikhúsi færir listafólkið þessar tvær þekktu sögur í nýjan og skemmtilegan búning á leikrænan og skapandi hátt.
Hjarta verkefnisins er gleðin yfir lestri og mikilvægi hans og býður það börnum að uppgötva hvernig saga getur lifnað við utan bókarinnar.
Að sýningu lokinni fá börnin tækifæri til að kynnast skuggaleikhúsinu betur, í samstarfi við listamennina, og notað ímyndunaraflið til að búa til sínar eigin skuggamyndir, prófa sig áfram með ljós, liti, vatn og hreyfingu og skapa sínar eigin sögur.
Í gegnum sögur, tónlist og leikhús geta börn og fjölskyldur kynnst annarri menningu, deilt reynslu og uppgötvað hvernig sögur geta tengt okkur saman, jafnvel þegar við tölum ólík tungumál.
Sýningin er ætluð börnum á aldrinum 3–12 ára og fylgdarfólki þeirra. Hún eru flutt á króatísku með íslenskum texta. Sterkt sjónrænt og tónrænt form sýninganna gerir þær aðgengilegar áhorfendum með ólíkan tungumála- og menningarbakgrunn.
Teatar Poco Loco er sjálfstætt atvinnuleikhús frá Zagreb sem árið 2025 hlaut króatísku leikhúsverðlaunin fyrir framúrskarandi framlag sitt til leikhússupplifunar fyir börn og ungt fólk.
Komdu og hlustaðu, horfðu, ímyndaðu þér og skapaðu með okkur!
Nánari upplýsingar veitir:
Guðrún Elísa Ragnarsdóttir, verkefnastjóri
gudrun.elisa.ragnarsdottir@reykjavik.is